Ég hef allt líf mitt leitað að þér, Leitað og spurt ertu þar eða hér, því ég trúði að til værir þú Trúði og ég á þig nú. Loksins ég fann þig, Líka þú sást mig, Ljóminn úr brúnu augunum skein, Haltu mér fast, í hjarta þér veistu Að hjá mér er aðeins þú ein. Sá ég þig fyrst um sólgullið kvöld, Sá þig og fann að hjá mér tókstu völd því hjá þér ég hvíld finn og frið, Ferð mín er bundin þig við. Loksins ég fann þig, Líka þú sást mig, Ljóminn úr brúnu augunum skein, Haltu mér fast í hjarta þér veistu Að hjá mér er aðeins þú ein.