Veistu hvað sagt er um menn, Sem oft týna leið? þeir sjái á jólunum ljós. Veistu hvað sagt er um þann, Sem oft stendur einn? Að hann á einhvern að um jólin. Enginn mig sér, Sama er mér, þótt hátíð sé inni þá úti ég er. Ég vil vera' í friði um jólin. Því er ég einn um jólin. Ef það er satt Að svart verði hvítt Og kalt verði hlýtt á jólakvöld. Þá getur það gerst Að þú gætir breyst Og loks fundið frið um jólin. Hvað er að mér? Kaldur ég er, þoli'ekki ljósin og gjafirnar hér. Ég vil vera í friði' um jólin. Því er ég einn um jólin. Á torginu ríkir kyrrð og ró. Ég horfi á ljósin og nýfallinn snjó. þá heyri ég hljóm, Sem fyllir upp tóm Um jólin. Þekkir þú boðskapinn þann, "þú elska skalt náungann"? Allt árið um kring, Byrjaðu nú - um jólin.