Kishore Kumar Hits

Björgvin Halldórsson - Lennon (hinn eini sanni Jón) lyrics

Artist: Björgvin Halldórsson

album: Þig dreymir kannski engil: Ballöður Björgvins


Með ögn af háðskum grun
í ömmugleraugum
Sem allt fannst heldur skrítið.
Og hjartað fullt af þrá
Að hneiksla alla þá
Sem hugsa alltof lítið.
Og aldrei skal það bregðast
þegar leikið er lag
Menn lenda fyrr en varir á tón
Sem minnir á þann sann'og eina Jón.
Hann fræddi oft um frið
Frelsi og réttlætið
Sem fegurst bíður manna.
En margt fær skrítið hent
Og maður getur lent
í martröð hálfvitanna.
Og aldrei mun það bregðast
þegar leikið er lag
Að lendi menn á riðma og tón
Sem minnir á þann sann'og eina Jón,
Minnir á þann sann'og eina Jón.
Alheimurinn í dag
Sé jafnvel verri í gær
Er var það nokkuð of í lagt.
Æ, heyrðu kæra systir,
Heyrðu bróðir kær,
Hvað hefði nú hann Lennon sagt?
Að guðir sigli um
á gulum kafbátum
Og gimsteinar úr skýjum
Falli í lófa þinn,
það frestast víst um sinn
Með fleiri draumum nýjum.
En eitt er alveg pottþétt,
Ef leika menn lag
þeir lenda fyrr en síðar á tón
Sem minnir á þann sann'og eina Jón,
Minnir á þann sann'og eina Jón,
Minnir á þann sann'og eina Jón.

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists