Kishore Kumar Hits

Skálmöld - Árás - Live In Reykjavík lyrics

Artist: Skálmöld

album: 10 Year Anniversary - Live in Reykjavík


Kvöld, úr norðri kólna fer
Kemur yfir heiðar
Vængjasláttur, vætta her
Varúlfar til reiðar
Ég reið yfir landið mitt, reri' út á fjörð
Rólegur sjórinn, ég lofaði Njörð
Í ljósanna skiptum ég leit upp í Skörð
Ljót var sú sýn er mér mætti
Kom yfir brúnina kolsvartur her
Ég kúventi bátnum og hraðaði mér
Vængirnir steinrunnir, vígtannager
Og væl sem nú kyrrðina tætti
Skugga hann varpaði, skelfileg sjón
Skálmöld var risin og mikið varð tjón
Drukknaði þannig mín dýrasta bón
Drepið var allt sem ég unni
Verja þau átti en var til þess seinn
Viti menn, lifandi eftir ei neinn
Ataður svörður sem áður var hreinn
Allt mitt var hrunið að grunni
Ég sá
Barnið mitt tætt, blóðugt og hrætt
Ég sá
Barið á húsgripum mínum og ætt
Ég sá
Saklaust blóð, fljóta um fljóð
Ég sá
Fjölskyldu slátrað sem var mér svo góð
Ég sá
Barnið mitt tætt, blóðugt og hrætt
Ég sá
Barið á húsgripum mínum og ætt
Ég sá
Saklaust blóð, fljóta um fljóð
Ég sá
Fjölskyldu slátrað sem var mér svo góð
Kvöld, úr norðri -- Ég sá
Kólna fer. -- deyja mær, dæturnar tvær
Kemur yfir -- Ég sá
Heiðar: -- dreyrrauðar klærnar sem læstust í þær
Vængjasláttur, -- Ég sá
Vætta her, -- visna jurt, var einhvers spurt?
Varúlfar til -- Ég sá
Reiðar. -- vágestinn glotta og halda á burt
Gekk um garð
Gríðarskarð
Höggvið hart
Hel mig snart
Vængjuð vá
Vargur sá
Nafn hans nefnt
Nú skal hefnt
Heit er gefið, heit sem verður efnt
Heit er gefið, heit sem verður efnt
Kvöld, úr norðri -- Gekk um garð
Kólna fer. -- gríðarskarð
Kemur yfir -- höggvið hart
Heiðar: -- Hel mig snart
Vængjasláttur, -- Vængjuð vá
Vætta her, -- vargur sá
Varúlfar til -- Nafn hans nefnt
Reiðar. -- nú skal hefnt
Heit er gefið, heit sem verður efnt
Heit er gefið, heit sem verður efnt
Heit er gefið, heit sem verður efnt

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists