Kishore Kumar Hits

Skálmöld - Hel - Live lyrics

Artist: Skálmöld

album: Skálmöld og Sinfóníuhljómsveit Íslands (Extended)


Horfir á mig Helja
Hálf er ásýnd blá.
Dæmdir hérna dvelja
Dauðinn kvelur þá
Kaldan ná.
Kuldi nístir kinnar
Klakaþil og snjór.
Minnist litlu systur minnar
Minn er hugur rór.
Minn er hugur rór og nú
ég sest í hennar sali
Og hún sjálf á móti mér.
Við treystum bönd með tali
Okkur tvö þar enginn sér.
Nú er stríð án vopna, styrjöld góðs og ills.
Hilmar, þín sál er í hættu
Hérna er voðinn þér vís.
Gleðjumst, og vel að þér gættu
Grátur í augunum frýs.
Hilmar, þitt galopna hjarta
Hitar upp allt sem er kalt.
Skapið sem mennirnir skarta
Skaðar þá þrátt fyrir allt.
Hilmar, Hilmar
Hrein eru viðbrögð og snörp.
Hilmar, Hilmar
Hugsunin rökrétt og skörp.
Hilmar, Hilmar
Hugrekki fékkstu í arf.
Hilmar, Hilmar
Hefur þú duginn sem þarf?
Hilimar er góður og Hilmar er merkur
Hrein eru viðbrögð og snörp.
Hilmar er fróður og Hilmar er sterkur
Hugsunin rökrétt og skörp.
Hilmar er reyndur og Hilmar er glaður
Hugrekki fékkstu í arf.
Hilmar er greindur og Hilmar er maður
Hefur þú duginn sem þarf.
Nú er stríð án vopna, styrjöld góðs og ills.

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists