Kishore Kumar Hits

Í svörtum fötum - Endurfundir lyrics

Artist: Í svörtum fötum

album: Tímabil


Ég hef saknað þín svo mikið
Frá því síðast er ég sá þig
Og ég þorði ekki að segja
Hvað bjó í hjarta mér.
En ég get ei lengur þagað
Er ég horfi svona á þig
því loksins hef ég skilið
Hvað ástarsæla er.
Því í hvert sinn er ég sé þig
Er eins og birti yfir öllu.
Það sem áður var svo venjulegt
það breytir allt um svip.
Gráir hversdagslegir dagar
Sem mig áður kvöldu' af leiða,
þeir fyllast nýjum ljóma
í sérhvert sinn er ég sé þig.
Ó vertu alltaf hjá mér,
þú mátt aldrei fara frá mér.
Ég skal vera þér eins góður
Og ég mögulega get.
Því ég elska þig svo mikið
Að ég gæti næstum dáið
Fyrir aðeins þessa einu nótt í faðmi þér.
Í hvert sinn er ég sé þig
Er eins og birti yfir öllu.
Það sem áður var svo venjulegt
það breytir allt um svip.
Gráir hversdagslegir dagar
Sem mig áður kvöldu' af leiða,
þeir fyllast nýjum ljóma
í sérhvert sinn er ég sé þig.
Ó vertu alltaf hjá mér,
þú mátt aldrei fara frá mér.
Ég skal vera þér eins góður
Og ég mögulega get.
Því ég elska þig svo mikið
Að ég gæti næstum dáið
Fyrir aðeins þessa einu nótt í faðmi þér.
Ó vertu alltaf hjá mér,
þú mátt aldrei fara frá mér.
Ég skal vera þér eins góður
Og ég mögulega get.
Því ég elska þig svo mikið
Að ég gæti næstum dáið
Fyrir aðeins þessa einu nótt í faðmi þér.
Ég elska þig
Ég elska þig

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists