Kishore Kumar Hits

Í svörtum fötum - Þú sem ert mér allt lyrics

Artist: Í svörtum fötum

album: Tímabil


Með höfuð undir væng,
Skuggar fall'á þína kinn.
Nóttin hlustar á þinn
Andardrátt.
Ég sest á þína sæng,
Fingur snerta vanga þinn
Og ég vona að þú vaknir brátt.
Næturmáninn skín
Og hann ljósi finnur leið
þegar gluggatjöldin bærast af og til.
Elsku ástin mín,
þú sem fyllir huga minn
Af orðum vara þinn og þeirra yl.
Þú sem ert mér allt.
Þú sem ert mér allt.
Ást mína og þrá
Alla muntu sjá.
Allt sem þú vilt fá.
Er þú liggur hér
Virðist framtíðin svo skýr,
Svo auðveld viðureignar,
Svo yndisleg.
Svo bærir þú á þér
Og þú opnar augun þín.
Er lítur þú á mig, segi ég:
Þú sem ert mér allt.
Þú sem ert mér allt.
Ást mína og þrá
Alla muntu sjá.
Allt sem þú vilt fá, í nótt.
Í nótt.
Í nótt.
Í nótt.
Þú sem ert mér allt.

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists