Fegurðarljómi þú færist mér nær Eins og í draumi, Svo heit og svo skær. Og mig langar að lifa Stundina og stað, Finna til sælu, Að upplifað. Fuglarnir hvísla Ormjóum róm, Flytja mér sögur Um leyndardóm. En ég veit þó ég unni þínum hag þá kemur dagur Eftir daginn í dag. Eru það bara freistingar? (Ég fylgist með þér.) Eru það bara hyllingar? Drepur í dróma Hug minn og hönd. Hart falla dómar, Mín sál hneppt í bönd. Veit ég má ekki fara þessa ferð. Ó, ég verð, Svo ég verð Að forðast þinn ljóma. Eru það bara freistingar? (Ég fylgist með þér.) Eru það bara hyllingar? Eru það bara freistingar (Ég fylgist með þér.) Sem ég sé með þeim augum Sem þú gefur mér? Eru það bara freistingar? (Ég fylgist með þér.) Eru það bara hyllingar? Eru það bara freistingar (Ég fylgist með þér.) Sem ég sé með þeim augum Sem þú gefur mér í nótt.