Bíum bíum bambaló Bambaló og dilli dilli dó Vini mínum vagga ég í ró. En úti bíður andlit á glugga Þegar fjöllin fimbulhá Fylla brjóst þitt heitri þrá, Leika skal ég langspil á - Það mun þinn hugan hugga. Þegar veður geisa grimm, Grúfir yfir hríðin dimm, Kveiki ég á kertum fimm, Burt flæmi skammdegisskugga. Bíum bíum bambaló Bambaló og dilli dilli dó Vini mínum vagga ég í ró En úti bíður andlit á glugga Ef þér sultur sverfur að, Sauðakjöt ég hegg í spað, Fljótt svo standi full með það Tunna hver, dallur og dugga. Ef þig langar eitthvert sinn Ögn að smakka góðfiskinn, Fram ég sendi flotann minn Skínandi skútur og kugga. Bíum bíum bambaló Bambaló og dilli dilli dó. Vini mínum vagga ég í ró En úti bíður andlit á glugga. Hjá mér bæði hlíf og skjól Hafa skaltu ef illskufól Flærðir með um foldarból Læðast og launráð brugga. Bíum bíum bambaló Bambaló og dilli dilli dó Vini mínum vagga ég í ró En úti bíður andlit á glugga. Úti bíður andlit á glugga.