Kishore Kumar Hits

Mannakorn - Þorparinn lyrics

Artist: Mannakorn

album: Braggablús


Þeir sögðu að ég væri þorparinn
þorpari í þorpinu
Og kjaftasögur kunni fólk um mig
ég flutti burt úr þorpinu
Svo kem ég aftur löngu síðar
Til að líta á gamla staðinn minn
Tvær gamlar konur stungu saman nefjum:
þarna kemur þorparinn
Nú lá mín leið um stræti stórborga
Og oft var ég þar einmana
ég veit samt ekki hvers ég saknaði
En upp af svefni vaknaði
Hér kem ég aftur svona löngu síðar
Til að líta á staðinn minn
Og finn að ég er enn í eðli mínu
Sami gamli þorparinn
Þau byrja öll og enda alveg eins
Líkt og milli sleggju og steins
Með ógnar brimöldu á aðra hönd
Og sjoppu út við gráa strönd
Hér kem ég aftur svona löngu síðar
Til að líta á staðinn minn
Og finn að ég er enn í eðli mínu
Sami gamli þorparinn
Á meðan grösin uxu í vorinu
Unnum við í slorinu
Hjá einu af fyrirtækjum sambandsins
Inn á reikning félagsins
Svo kem ég aftur svona löngu síðar
Til að líta á staðinn minn
Og finn að ég er enn í eðli mínu
Sami gamli þorparinn
Og finn að ég er enn í eðli mínu
Sami gamli þorparinn

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists