Ein í bragga, Magga, gægist út um gluggann, Bráðum sér hún Skuggabaldur skunda hjá. Enn einn túrinn, stúrinn, olíu á skúrinn Er erfitt nema fyrir fjandans aur að fá. Í vetur, betur gekk henni að galdra Til sín glaða og kalda karla sem oft gáfu aur. En Magga í sagga, situr ein í bragga á ekki fyrir olíu er alveg staur. Fyrst kom bretinn, rjóður, yndislega góður þá bjó hún Magga á Borginni í bleikum kjól. Svo kom kaninn, þaninn, kommúnistabaninn þá kættist Magga ofsarlega og hélt sín jól. Svo færðist aldur yfir eins og galdur Og ávallt verra og verra var í karl að ná. Nú er Magga stúrin því olíu á skúrinn Er erfitt nema fyrir fjandans aur að fá. Ein í bragga Magga, gægist út um gluggann Bráðum sér hún Skugga Baldur skunda hjá. Enn einn túrinn, stúrin, olíu á skúrinn Er erfitt nema fyrir fjandans aur að fá. Í vetur betur gekk henni að galdra Til sín glaða og kalda karla sem oft gáfu aur. En Magga í sagga situr ein í bragga á ekki fyrir olíu er alveg staur.