Ég er að spila í kvöld í keiluhöllinni Kostar ekkert inn en samt er gestalisti Mæta kannski menn sem allir kannast við En kannski mætir engin nema Veðurguðirnir En Sigmundur Davíð kemur fyrstur Gunnar Bragi aðeins þyrstur Svo koma Jói Pé og Króli Gísli Marteinn mætir á hjóli Ég fæ mér ekki einn af því ég keyri Tryggvi Guðmunds fær sér fleiri Steindi Jr. verður léttur Sveppi Krull með nokkrar rettur Hildur Lilliendahl er á lista Því við elskum feminista Bára Halldórs mun svo hlera Hún þarf að hafa eitthvað að gera Kostar ekkert inn en samt er gestalisti Mæta kannski menn sem allir kannast við En kannski mætir engin nema Veðurguðirnir Og þó það komi ekki kjaftur Mætir Eiður Smári aftur Svo kemur líkamsvirðingar-Tara Og hún fær sér hamborgara Instagram stjarna kemur og veitir Það veit enginn hvað hún heitir Anníe Mist á faraldsfæti Freyja Haralds með hörkulæti Beggi, Pacas, Friðrik Ómar Og einhverjir 4 aðrir rjómar Bjartmar Guðlaugs, Auddi Blö Gunni Nels og Siggi Hlö Upp við sviðið fullt af peyjum Og einhver fyllibytta úr eyjum Þetta er gestalistinn, Þetta er gestalistinn Þetta er gestalistinn, Þetta er gestalistinn Og Gylfi Ægis er upp við sviðið Að stoppa útlendingaliðið Ég bauð Erpi Ég held hann hafi nefnt Uppáhalds rapparann minn hann Bent Sölvi Tryggva dottinn í það Og orðinn alveg laus við kvíða Baltasar Kormákur og Frikki Dór og Jón Jónsson að chugga bjór Og alveg mökkaður þorgrímur þráins Og Hemmi Gunn, því hann er ekki dáinn Ofurölvi fylliraftur passar að það skemmti sér ekki kjaftur Og ég verð aldrei ráðinn aftur