Kishore Kumar Hits

kef LAVÍK - Þórisvatn (næturvinnan) lyrics

Artist: kef LAVÍK

album: Vesæl Í Kuldanum


Alein um nótt gegnum gjörið þá fokkið við keyrum
Þótt þú þegir og sofir þá glottir þú skítt út að eyrum
Aldrei viðurkennir þú það fyrir aðra
þú ert lítil sál
Allt sem þú snertir mun breytast í gull á núll einni
Þegar tunglið er fullt mun ég umbreytast verða að steini
Sársaukinn í hausnum á mér hann mun hverfa
Gefðu mér smá stund
Við erum lítið fólk fyrir heiminum
Við verðum Þórisvatn myndum flóana
Dreymi hana gangandi heim til mín
Ég hef gengið í gegnum öll helvíti
Hún er eins og Barbara Streisand, uppmáluð og svart hvít gengur inn í íbúð og kveikir sér í sígarettu
Ég er á leiðinni hugsandi um allt sem ég gerð'enni
Meðan hellir hún sér í vatnsglas tekur af sér jakkann tekur síðan kipp þegar ég geng inn með látum og hún veit að ég fékk mér bjór
Ég er búinn að vinna í alla nótt
Hún er eins og heimsendur engill stendur þarna og reykir, kyssir á mér nefið og segir við mig það er allt í lagi að gera mistök
Ég hef hugsað um þig í alla nótt
Þegar hún fer úr kann hún galdra tekur af sér farfann leggur mig á sófann og rekur alla truflana í burt
Málaði heiminn og fór svo að þú yrðir ánægð
Þegar þú situr hliðin á mér finnst mér guð vera nálægt
Virkar eins og rotvarnarefni í heimi sem að úldnar hægt
Rífur þig úr og ég ríð þér í síðasta skipti
Ég finn brjóstið mitt opnast á beini mín verða að engin
Stöðuvatnið hlustar á okkur á meðan, reyndu að hafa lágt
Við erum lítið fólk fyrir heiminum
Við verðum Þórisvatn myndum flóana
Dreymi hana gangandi heim til mín
Ég hef gengið í gegnum öll helvíti
Hún er eins og Barbara Streisand, uppmáluð og svart hvít gengur inn í íbúð og kveikir sér í sígarettu
Ég er á leiðinni hugsandi um allt sem ég gerð'enni
Meðan hellir hún sér í vatnsglas tekur af sér jakkann tekur síðan kipp þegar ég geng inn með látum og hún veit að ég fékk mér bjór
Ég er búinn að vinna í alla nótt
Hún er eins og heimsendur engill stendur þarna og reykir, kyssir á mér nefið og segir við mig það er allt í lagi að gera mistök
Ég hef hugsað um þig í alla nótt
Þegar hún fer úr kann hún galdra tekur af sér farfann leggur mig á sófann og segir við mig það er allt í lagi að gera mistök
Ég hef hugsað um þig í alla nótt
Í alla nótt
Í alla nótt
Í alla nótt

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists