Kishore Kumar Hits

kef LAVÍK - Skartgripir fyrir karlmenn (djúpir dalir) lyrics

Artist: kef LAVÍK

album: Vesæl Í Kuldanum


Ég drekk ekki rautt
Því þegar ég drekk það þá verð ég svo sentimental
Rauðvín í glærum plastglösum
Hvíta veskið þitt eins og endurskinsljós
Ég drekk ekki hratt
Því þegar ég þamba þá fatta ég allt sem vantar
Rauðvín í glærum plastglösum
Djúpir dalir sem virðast dýpka stanslaust
En ég er ókei
Ég klæðist skartgripum fyrir karlmenn
Ég er alltaf með armbandsúr ef ég fer út
Með sexý svip, með sexý svip
Ég er ókei
Ég klæðist skartgripum fyrir karlmenn
En ég hef ekki fundið neitt svolítið lengi
Svolítið lengi
Og ég öskra hjartað úr mér á nóttunni
Í koddann minn þú sagðir við mig
Hleyptu því út
Það finna allir sársauka og líka þú
Ég nota' ekki E
Því þegar ég poppa þá hugsa ég alltaf um þig
Rauðvín í glærum plastglösum
Rúmið hristist hratt milli sopana
Ég drekk ekki einn
Því þegar það gerist þá hugsa ég allt of mikið
Rauðvín í glærum plastglösum
Djúpir dalir sem virðast dýpka stanslaust
En ég er ókei
Ég klæðist skartgripum fyrir karlmenn
Ég er alltaf með armbandsúr ef ég fer út
Með sexý svip, með sexý svip
Ég er ókei
Ég klæðist skartgripum fyrir karlmenn
En ég hef ekki fundið neitt svolítið lengi
Svolítið lengi
Og ég öskra hjartað úr mér á nóttunni
Í koddann minn þú sagðir við mig
Hleyptu því út
Það finna allir sársauka og líka þú
Þú sagðir þú ert vondur, og ljótur að innan
Gott að ég er það að upplagi líka
Þú ert algjört skrímsli, sem kann ekki að elska
Ég hef verið svoleiðis síðan ég var barn
Þú ert sko vondur, og ljótur að innan
Gott að ég er það að upplagi líka
Þú ert algjört skrímsli, sem kann ekki að elska
Ég hef verið svoleiðis síðan ég var barn

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists