Kishore Kumar Hits

kef LAVÍK - Lifum alltaf // Keflavíkurnætur III lyrics

Artist: kef LAVÍK

album: Vesæl Í Kuldanum


Með hverri nótu sem ég sem ég spila,
Orði sem ég skrifa,
Gef ég hluta af sálinni
Þó það sé ósköp lítið þar.
Það sé ósköp lítið þar.
Með hverri nótu sem ég er að syngja
Til þín finn ég orkuna að fjara úr mér
Það var nógu lítið þar.
Það var nógu lítið þar.
Þú sagðist hata kuldann
Eins og hann sé ástæðan
Og, baby, ég skil það svosem
En stundum er betra að segja satt.
Með hverju lagi sem ég bjó til um þig
Fannst mér bara fjarlægðin á milli okkar
Lengjast hægt og rólega.
Lengjast hægt og rólega.
Með hverju orði sem þú segir við mig
Finnst mér að þú grafir mig í jörðina
Og verðir minna og minna þú.
Verðir minna og minna þú.
Þú sagðist hata kuldann
Sagðist verða að fara strax
Og, baby, ég skil það alveg
En við áttum að lifa alltaf.
Hún sagði "Gleðilegt nýtt ár.
Hafðu það sem allra best og hættu að hugsa um mig.
Hættu að hugsa um Keflavík því framtíðin er til.
Við verðum þó við.
Saman eða í sundur verðum við þó alltaf við.
Gleðilegt nýtt ár.
Ég fer aftur eftir viku ekki vera þar.
Ekki eins og síðast því þú eyðilagðir allt.
Hræddir litlir hvolpar lifa aldrei kuldann af.
Hræddir litlir hvolpar lifa aldrei kuldann af.
Hafðu það sem allra best og stingdu af drauginn þinn.
Hættu að hugsa um úlfana og þeir hætta að elta þig.
Vatn er bara vatn,
Hvort sem það er kennt við Þóri eða annað nafn.
Gleðilegt nýtt ár.
Þú veist að ég varð að hætta og yfirgefa þig.
Fíkniefni blekkja fólk og náðu að blekkja mig.
Stórir vondir hundar hræðast ekki sprengingar.
Stórir vondir hundar hræðast ekki sprengingar.
Líttu í burt frá himninum og horfðu í smá á mig,
Sérðu ekki að andlitið mitt breyttist frá því fyrst?
Horfðu beint á mig,
Viðurkenndu það bara að þú eyðilagðir mig.
Gleðilegt nýtt ár.
Sjáumst kannski seinna þér mun líða betur þá.
Kannski verður tíminn búinn að sjá um þessi sár.
Gleðilegt nýtt ár og svona áður en ég fer,
Næturnar í Keflavík þær sitja enn í mér."

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists