Með rauðvín í glasinu á reykfylltri krá Og djúpt inn í rökkrinu fellur tár Ég hugsa um ástina sem horfin er frá Ég hugsa um augun þín hrein og blá Og ég hef brennt ótal brýr Að baki ei fengið frið, engan grið Ef maður er aðeins það sem hann hefur gert Er líf mitt aðeins til ills, einskisvert En ævin er uppkast sem þú párar á blað Þú færð aldrei annan séns á þessum stað Nú böðul minn einan á að, mér við hlið Mér við hlið. Líkt og laufblað að hausti til Er fellur af tré Á niðdimmri götunni Niður hann hné Er ég stíg út á strætið autt Fara skuggarnir á stjá Myrkrið og malbikið blautt, eru flá Ég hvíði ei dauðanum Þó viti ég vel Að ég skuldi örlögunum dvöl í hel Og hinsta hugsýnin Er birtist augum mér Er mynd af ástinni Myndin af þér