Sterklegur skrokkurinn vaggar Í djúpum öldudal Malið í vélinni mig leiðir í draumunum heim Blikar í sortanum vitinn Sem vísar okkur leið Stendur við ströndina og lýsir til minningar þeim Sem komu aldrei heim Komu aldrei heim Hrímaðir gluggar og gaddfreðinn snjór Inn í skipið streymir biksvartur sjór Ég hugsa um fólkið mitt heima Sem í hlýju hvílist nú Ég kveð í huganum og hverf ofan í hyldýpisins geim Ég kem aldrei aftur heim Aldrei aftur heim