Kishore Kumar Hits

Jónas Sig - Manstu þennan dag? lyrics

Artist: Jónas Sig

album: Þar sem himin ber við haf


Manstu hvaða dag það var
Sem allir draumar þínir glötuðu sínum lit
Var eitthvað sem að út af bar
Eða hversdagsleikinn grár
Fyrir járnum
Sem með þunga sínum
Yfirbugaði þig
Manstu eftir brunni
Sem í brjósti þínu geymdi alltaf svar
Hvað myndirðu gefa til
Að eignast aftur það sem var
Manstu eftir vori
Á hverjum morgni
Við fæddumst upp á nýtt
Við böðuðum okkur í sólinni
Síðar á kvöldin
Við spenntum greipar
Og báðum heiminn þess
Að dagur risi á ný
Manstu eftir draumi
Um dag sem að framtíðin í skauti sínu bar
Hvað myndirðu gefa til
Að eignast aftur það sem var
Manstu eftir brunni
Sem í brjósti þínu geymdi alltaf svar
Hvað myndirðu gefa til
Að eignast aftur það sem var

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists