Ein í myrkum heimi þar ert þú Ein af hafi rekin þrekuð þú Ein og þekkir ekki rödd þína Ein með engan vitjunartíma Ein í heimsins hafi rekur um stund Ein, leið virðist löng og lokuð sund Hvar sem þú leitar þú finnur aftur farin veg Óskar þess heitast að vitund þín sé varanleg Það ert þú Sem til himins hugsar Og spyrð um þína trú Þú sem að leitar Og lifir Nú Eitt blik á stjörnubjörtum himni, þú Ein bára á sléttum hafsins fleti, þú Eitt barn sem fæðist meðan annað fer Eitt skip í tímans hafi, steytt á sker Það ert þú