Stúlka með myrkrið í fangið. Ég skal blása þér leið. Ég er rokið Að fósturjarðar þinnar strönd og hlíðum. Og ég gleymi þér aldrei. Strákur með lífið í vændum. Ég skal varða þinn veg. Ég er vonin Í fósturjarðar þinnar strönd og hlíðum. Og ég gleymi þér aldrei. Þó kannski kveðjumst við og sjáumst aldrei aftur. Ég gleymi þér aldrei. Gleymdu því aldrei. Ég bíð hér, Ég verð alltaf hér, Ég bíð eftir þér, Hér mun ég fagna þér. Því ég gleymi þér aldrei. Gleymdu því aldrei.