Eyvindur Fjalla hann situr í helli, ævagamalla og hrör af elli. Konan hans Halla, Hún breiðir út feldinn, Liggja þau hljóð Og elskast á kveldin. Bág er tíðin og böl í sveitum Sauðaþjófar þeir liggja í grafreitum. Grasa-Guddu þeir böstuðu og brenndu, Bévítans grasið á bálið þeir sendu. Mökkinn af reyknum til himins þá lagði, Skakkur sat Pétur í efra og sagði:,, Bisnessinn búinn og einnig hvarf trúin á rasta!" Þeir bundu upp allt sem þeir fundu En tóku hina fasta. Texti: Magnús Finnur Jóhannsson og Berglind Björk Jónasdóttir