Hví er ég Arinbjarnarson En hvorki Kúld né Schiöth Sem búa' á númer þrettán Í sömu götu' og ég Í sama húsi' og ég? Á sömu hæð býr afi Arinbjörn Og amma Fía Sparsöm kona ofan'úr Hreppum Sem lifir dauðann af Í dönskum bókaskáp Mamma vildi annan mann Og pabbi annað víf En það fæddist lítið barn Hér á þessum stað Mér finnst það fjandi hart Því barnið ég er það Því er ég ég en ekki þú Og við við en ekki bara eitthvað annað Maðkur eða mús Máfur eða hús Dagblað eða djús Krukka eða krús Mínus eða plús Andrés eða önd Ég en ekki þú