Fornar súlur flutu á land í dentið Þrælahyskið þefaði upp brakið í reykjavík Og rúmum 1000 árum síðar Fluttum við úr múlakampnum upp í hlíðar Það var malbikað Og borgin stækkaði Kaupið stóð í stað En leigan hækkaði Og hækkaði Nú er hann úr sér genginn miðbærinn Sem tómas karlinn fór um fögrum orðum Og fluttur uppá golfvöll Þar sem jarðepli og laukar spruttu forðum Reykjavík hvað ætlar þú að verða Reykjavík þegar þú ert orðin stór? Ingólfur skimar fránum sjónum Um arnarhól og klórar sér í þjónum Hvílík býsn sem hann jól er að byggja Einum of svona eftir á að hyggja Það var malbikað Og borgin stækkaði Kaupið stóð í stað Og leigan hækkaði Hún hækkaði Nú eru endurnar á tjörninni Með rassmótora í pöntun sterka og stóra Þær heita andfræðingar núna Ætla í verkfall vilja komast í B-4 Reykjavík hvað ætlar þú að verða...