Á fleytifullu tungli ég fæddist snemma' í maí Löngu' eftir að flaug hann Gagarín Upp í loftið bláa, síðan ólst ég upp Skorti hvorki járn né vítamín Ég var eins og flestir, fékk rauða hunda' og kvef Og ekki pláss á barnaheimili Við fluttum tvisvar þrisvar og einu sinni til Nú stefna pabbi og mamma' að parhúsi Ég er einn af þeim sem eiga að erfa landið Ef eitthvað verður eftir handa mér Og þú þarft svosem ekki' að verða hissa Þó ekkert verði heldur handa þér ♪ Ralalalalala, ralalalalala Ralalalalala, ralalalalala Ralalalalala Íslenskt uppeldi kenndi mér að gráta' ekki Og ekki' að bjóða fram hinn vangann Ég slapp við uppvaskið, fékk enga fræðslu um kynlífið Tefldi fjöltefli við páfann ♪ Svo varð ég hluti' af unglingavandamálinu Byrjaði að drekka um fermingu Og alveg eins og obbinn þá veit ég ekki hvað Ég á að gera' af mér í lífinu Ég er einn af þeim sem eiga að erfa landið Ef eitthvað verður eftir handa mér Og þú þarft svosem ekki' að verða hissa Þó ekkert verði heldur handa...