Kishore Kumar Hits

Spilverk þjóðanna - Aksjónmaður lyrics

Artist: Spilverk þjóðanna

album: Ísland


Veistu hver ég er
Svírasver og svakalega flinkur?
Búinn í hvað sem er
Þú stendur klár á því
Ég fer daglega í sund
Og heilla sprund
Sleipur eins og minkur
Í blíðu og stríðu
Er ég sannur aksjónmaður
Ég er til í allt
Launfirnagraður kem ég vaðandi
Með vopn mín og verjur
Ekkert jafnast á við átök og erjur
Nema réttlætið
Undirritaður er sannfærður
Um gildi þess að vera
Sannfærður um gildi þess
Að vera sannfærður
Vilt þú ekki verða aksjónmaður?
Vilt þú ekki vera alveg eins og ég?
Vilt þú ekki vera aksjónmaður?
Og þar með ofjarl
Dreka og skugga
Stínu og stjána
Þú færir létt með
Að stinga undan Ken
Og bruna á braut með Barbie
Síðan sagði aksjónmaður
Í lífsins ólgusjó
Er ekki nóg að merja' yfir á gulu
Því skrifað stendur
Ljós eru eftir þessi ljós
Spurðu Morgan Kane
Þann norska svein
Hann fæst í næstu sjoppu
Þeir Tinni og Tarzan taka undir
Aksjónmaður, ég er til í allt
Launfirnagraður kem ég vaðandi
Með vopn mín og verjur
Ekkert jafnast á við átök og erjur
Nema réttlætið

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists