Ég hangi heima Og læt mig dreyma' um ferðabar Drossíu og far Með smyrli Um hús á hjólum í Vatnsdalshólum Væna jörð En samt er það nú svo Að þó ég þjarki' og þræli Ég ekkert fæ Og þó ég púli' og pæli Einn ég ræ Í Barcelona Sjöfn og Jóna sviku mig Með Casanova' á dyr Þær ruku En ég bíð og vona Að einhver fögur diska dís Vilji eiga mig En þó ég þjarki' og þræli Ég engri næ Og þó ég púli' og pæli Einn ég ræ Dægurlagatextarnir Þeir fjalla gjarnan um Hve auðvelt er að ná sér í konu Þú ferð bara á ball Úllen dúllen doff (Ó - ó, ó, ó, o-ó) Á Spáni ♪ Hvernig fór um sjóferð þá? Tókst söguhetjunni konu' að fá? Reyndar gerði' hann það, hún var fjórum árum yngri Og hann gerði soldið meir, meira að segja bæði þetta og hitt Alveg satt Hreina satt Seinna fæddist þeim einn státinn sporðdrekasveinn Viltu vita meir? Jú þau leigðu í blokk, fengu grafík og potta í brúðargjöf Og unnu eins og brjáluð fyrir víxlunum Þau fengu varla sofið fyrir gjalddögum Það borgar sig að byggja Þó að stressið sé að taka þig á taugum Tékkar og víxlar (sef ekki dúr) Tékkar og víxlar (sef ekki dúr) Tékkar og víxlar (sef ekki dúr, mamma) Tékkar og víxlar (sef ekki dúr) Skattar og skuldir (sef ekki dúr) Skattar og skuldir (pabbi, sef ekki dúr) Skattar og skuldir (sef ekki dúr) Og algengar duldir (sef ekki dúr, mamma)