Fram allir vöðvar Á vöðvafjöllum. Fram vöðvaknippi Á búkum öllum. Fram allir landsmenn Í líkamsrækt. Fram loðnar bringur Þó spretti hægt. Fram vaskir drengir Fram vöðvabúnt. Fram vormenn Íslands Í endalausan rúnt. Já, gerumst gildir vöðvar Og hreinsum heilastöðvar. Guð skóp sér manninn í miklum flýti Og margir finna á því verki lýti, Að vísu all góður árangur, En ansi lélegur frágangur. Því ber að laga þetta verk. Það er okkar skylda við hinn æðsta klerk. Já, gerumst gildir vöðvar Og hreinsum heilastöðvar.