Ósamræmi, hugur minn á sveimi Úr takt við hugans rætur Fljótandi hugsanir, algleymi Umlukin myrkri í draumi Sveipuð djúpu húmi Augun tómu bláu Opna nýjan heim Að hugans hafi, gráu Nótt eftir nótt eftir nótt Þú sefur ekki Ég breiði svarta vængi yfir Kafna í köldu myrkri Nóttin herðir fastar að Þar til ég missi andann Missi andann Nótt eftir nótt eftir nótt Þú sefur ekki Nótt eftir nótt eftir nótt Þú sefur ekki Andvaka, andvaka ofin í endurteknar martraðir Heltekin af skjálfandi andnauð Drukknandi í endalausu draumkendu svartholi Andvaka í endalausu martraða svartholi Martraðir Andvaka martraðir Nótt eftir nótt eftir nótt Þú sefur ekki Nótt eftir nótt eftir nótt Þú sefur ekki Nótt eftir nótt eftir nótt Þú sefur ekki Nótt eftir nótt eftir nótt Þú sefur ekki