Fætur mínir skeika í skini silfurmána Sem bíður mér þögullar nætur. En lítil stúlka illa lætur og stígur villtan Vangadans við nóttina. Hratt hún dansar í hundrað hringi Meðan myrkrið magnast upp Í kringum hana og innra með henni Og henni líður betur. Hún veit hvað hún vill Og hún veit hvað hún getur. Hún gerir það mikið, Hún fer yfir strikið. Týnd í sýndarveruleika. Reika í óraunveruleika Og leik mér að því sem ekki er. Veik og sama hver, allir vilja bjarga mér Á meðan ég vil farga því sem er. Sólin sest og hún blotnar, Sólin rís og hún brotnar. Hún líkist ekki neinum í hundrað og einum, En á föstudögum trúlofast hún nóttinni.