Til ei lætur tíðin mér Trúrri sætu velja hér Ljóðin fríðu breidd á blað, Bagar stríðið daglegt það Margt að snasar manni þeim Mæðu flas um víðan heim, Sem í dagan æsku ær á forlaga sjóinn rær Ormar gnaga illir þar, Yfir dragast banvænar Eldrigningar óyndis, Afleiðingar gæfuslys Hyrjar baldinn byrinn þver, Byrjar aldrei fyrir grér Drafnar hænu hafnar því Hafnir mænir stafninn í