Þú veist að eyjan geymir ótal svör Og ívið fleiri spurningar. Sögu hennar þekja ófá ör Sem ætíð munu hvíla þar. Hún sorgir á, sem engir sjá — óteljandi leyndarmál. Undir niðri blundar öflug þrá — ægifögur, hyldjúp sál. Hún logar. (logar) Hún leitar aftur til mín. Hún togar. (togar) Hún togar okkur til sín. — Teymir okkur til sín. Við sjáumst þar þið vitið hvar. Við eldana til eilífiðar (Til eilífðar - til eilífðar) ♪ Þó ég fengi með þér milljón ár það myndi varla duga til. Má ég eiga með þér öll þín tár? — Það er það eina sem ég vil. Þú kraumar. (kraumar) Þú kallar þögul á mig. Draumar. (draumar) í dögun minn á þig. — Þeir minna alltaf á þig.
Við sjáumst þar. Þið vitið hvar. Við eldana til eilífðar. (Til eilífðar - til eilífðar) Við sjáumst þar. Þið vitið hvar. Við eldana til eilífðar. (Til eilífðar - til eilífðar) Við sjáumst þar. Þið vitið hvar. Við eldana til eilífðar. (Til eilífðar - til eilífðar)