Ég gef þér allt mitt líf, Allt sem ég veit og skil. Ég gef þér allt, sem best og fegurst fundið get. Hjá mér þú hæli átt Hvar sem ég verð og er. Hjá þér vil una öllum stundum mínum. Ég er oftast ein, og þá ég hugsa títt um þig. En veit þó ei hvað þú Munt ætla þér með mig. Því þú ert svo óákveðinn oft Og ég þori ei að spyrja þig. Þú gætir reiðst mér þá. Ég gef þér allt mitt líf, Allt sem ég veit og skil. Ég gef þér allt, sem best og fegurst fundið get. Hjá mér þú hæli átt Hvar sem ég verð og er. Hjá þér vil una öllum stundum mínum. Viltu vina mín í dag Mér svara, því ég spyr Og verð að fá það svar, Sem segir hvar ég stend. Því ég get ei í blindni treyst á þig, því þú hefur oft brugðist mér Og þetta særir mig. En ást mín er öll ætluð þér Ef aðeins þú ert mér tryggur. Enginn nær mér frá þér En þá verður þú að gefa vissu um það Að ég eigi þig alein, því að ég er þér trú. Ég er þín Ég er þín Ég er þín alla tíð. Ég gef þér allt mitt líf, Allt sem ég veit og skil. Ég gef þér allt, sem best og fegurst fundið get. Hjá mér þú hæli átt Hvar sem ég verð og er. Hjá þér vil una öllum stundum mínum. Ég gef þér allt mitt líf, Allt sem ég veit og skil. Ég gef þér allt, sem best og fegurst fundið get. Hjá mér þú hæli átt Hvar sem ég verð og er. Hjá þér vil una öllum stundum mínum.