Ef ég ætti óskastein, Yrði óskin aðeins ein. Ég er alltaf að reyna, þú veist hvað ég meina, Um frægð og framandi lönd. Slá í gegn, slá í gegn, þú veist ég þrái að slá í gegn. Af einhverjum völdum Hefur það reynst mér um megn. Ég gæti boðið þér betri kjör, Bíl og íbúð, brúðarslör. Vakinn og sofinn, Stálsleginn dofinn, ég reyni að öðlast frægð. Slá í gegn, slá í gegn, þú veist ég þrái að slá í gegn. Af einhverjum völdum Hefur það reynst mér um megn. Ég myndi gera næstum því Hvað sem er fyrir frægðina, Nema kannski Að koma nakinn fram. Ó, ó, allt annað fyrir það Ég færi í heljarstökk afturábak Af littlu bretti fyrir frægðina. Slá í gegn, slá í gegn, þú veist ég þrái að slá í gegn. Af einhverjum völdum Hefur það reynst mér um megn.