Þú kveiktir von um veröld betri Mín von hún óx með þér. Og myrkrið svarta vék úr huga mér um stund, Loks fann ég frið með sjálfum mér. Það er svo undarlegt að elska Að finna aftur til. Að merkja nýjar kenndir kvikna, Að kunna á því skil Hvernig lífið vex og dafnar í myrkrinu. Að hugsa um þig hvern dag, hverja nótt Er skylda sem ber umbunina í sjálfri sér. Þitt fyrsta bros, þín fyrstu skref, þitt fyrsta orð. Þín fyrstu tár, þín fyrsta sorg, þín fyrsta hrösun. Þín fyrsta ást, þinn fyrsti koss, þitt fyrsta ljóð. Mér finnst þú munir fæða allan heiminn alveg upp á nýtt. Það er svo undarlegt að elska Að finna aftur til. Að merkja nýjar kenndir kvikna, Að kunna á því skil Hvernig lífið vex og dafnar í myrkrinu. Að hugsa um þig hvern dag, hverja nótt Er skylda sem ber umbunina í sjálfri sér. Þitt fyrsta bros, þín fyrstu skref, þitt fyrsta orð. Þín fyrstu tár, þín fyrsta sorg, þín fyrsta hrösun. Þín fyrsta ást, þinn fyrsti koss, þitt fyrsta ljóð. Mér finnst þú munir fæða allan heiminn alveg upp á nýtt. ... Þitt fyrsta bros, þín fyrstu skref, þitt fyrsta orð. Þín fyrstu tár, þín fyrsta sorg, þín fyrsta hrösun. Þín fyrsta ást, þinn fyrsti koss, þitt fyrsta ljóð. Mér finnst þú munir fæða allan heiminn alveg upp á nýtt.