Um holótta grýtta götu Þú gengur með staf þér í hönd Og sérð það er bátur að berjast Við brimið nærri strönd Þú sérð það er bátur að berjast Sú barátta fer ekki vel Þar velkist í válegu róti Lítil, veikbyggð skel Nú hanga skýin henglum í Hafið vekur þungan gný Og himinninn er grár í dag Þér þykir svo vont að vita Af vinum í sárri neyð Og geta ekki veitt þeim vonir Og vísað færa leið En líta skal lengur á málin Og ljóst virðist mér það nú Að brimið er barningur lífsins Og báturinn hann er þú Nú hanga skýin henglum í Hafið vekur þungan gný Og himinninn er grár í dag Nú hanga skýin henglum í Hafið vekur þungan gný Og himinninn er grár í dag