Kishore Kumar Hits

Hvanndalsbræður - Maístjarnan lyrics

Artist: Hvanndalsbræður

album: Út úr kú


Ó hve létt er þitt skóhljóð
ó hve lengi ég beið þín
það er vorhret á glugga
Napur vindur sem hvín
En ég veit eina stjörnu
Eina stjörnu sem skín
Og nú loks ertu kominn
þú ert kominn til mín.
Það eru erfiðir tímar
það er atvinnuþref
ég hef ekkert að bjóða
Ekki ögn sem ég gef
Nema von mína og líf mitt
Hvort ég vaki eða sef
þetta eitt sem þú gafst mér
það er allt sem ég hef.
En í kvöld lýkur vetri
Sérhvers vinnandi manns
Og á morgun rís maísól
það er maísólin hans
það er maísólin okkar
Okkar einingabands
Fyrir þér ber ég fána þessa framtíðarlands.
Og nú loks ertu kominn
þú ert kominn til mín.

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists