Til er á jörðu mál sem tengir þjóð við þjóð Þögn og múrar hindra ekki tónaflóð. Það skiptir engu hvaðan berast lög og ljóð, Við söngva metum, Sungið getum Og saman fetum nýja slóð. Tökum nú lagið, nýtum nóttina og daginn, Nú er lag sem minnir á ferskan blæinn. Glaðar og góðar stundir Gefast um þessar mundir Og þess vegna viljum lífga upp á bæinn. Látum sönginn hljóma hátt, Hann skal fylla loftið blátt. Vilja til friðar veita, Vináttu þinnar leita. Þunglyndi eyða, Þjóðinni leiða í sátt. Glaðar og góðar stundir Gefast um þessar mundir Og þess vegna viljum lífga upp á bæinn. Látum sönginn hljóma hátt.