Kishore Kumar Hits

Ðe lónlí blú bojs - Heim í Búðardal lyrics

Artist: Ðe lónlí blú bojs

album: Komplít


Er ég kem heim í Búðardal
Bíður mín brúðarval.
Og ég veit það verður svaka partý.
Bíð ég öllum úr sveitinni,
Langömmu heillinni,
það mun verða veislunni margt í.
Ég er lukkunnar pamfíll, svei mér þá.
þó ég hafi ekki víða farið.
Ég er umvafinn kvenfólki,
það get ég svarið,
Og minna gagn gera má.
Þegar vann ég í Sigöldu
Meyjarnar mig völdu
Til þess að stjórna sínum draumum.
En nú fer ég til Búðardals,
Beint heim til kerlu og karls
Sem af gleði tárast í taumum.
Er ég kem heim í Búðardal
Bíður mín brúðarval.
Og ég veit það verður svaka partý.
Bíð ég öllum úr sveitinni,
Langömmu heillinni,
það mun verða veislunni margt í.

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists