Ég hef drukkið með, slegist og dansað við úlf Já daðrað við Úlfhildi á Björgum Og hún var aðeins ein af ó svo mörgum. Hárið það liðast um herðar og bak Á höfði er ei lokkur Ljúft er hjá Úlfhildi að ligga og Svakalegur má segja að sé hennar skrokkur Mælist á Richter er mér tekur hún tak Ég hef drukkið með, slegist og dansað við úlf Já daðrað við Úlfhildi á Björgum Og hún var aðeins ein af ó svo mörgum. Hýungurinn svo hárfínn á vör, en hlýrri á vanga Illt er að finna í alls engri spjör, Úlfhildi í myrkrinu úrill og svanga Urrar hún blíðlega og upphefst þá verulegt fjör Ég hef drukkið með, slegist og dansað við úlf Já daðrað við Úlfhildi á Björgum Og hún var aðeins ein af ó svo mörgum. Rétt eins og kynsystur hennar mér reið, hún reynist á stundum Í brjálæðiskasti hún skellir á skeið, Skundar til bæja og fargar þar hundum Og vergjörn sér í annan vinnumann krækir um leið. Ég hef fengið nóg af óværunni Og falsettu sónum rennir rekkjan mín og helvítis fjöreggja hrærunni Nú kem ég til þín, kolrassa Krókríður mín Ég hef drukkið með, slegist og dansað við úlf Já daðrað við Úlfhildi á Björgum Og hún var aðeins ein af ó svo mörgum. Já hún var aðeins ein af ó svo mörgum. Já hún var aðeins ein af ó svo mörgum.