Einn, tveir og þrííír! (Sóló) Nú ætlum við sko út sjó að veiða nokkrar ýsur, Eða þorska eða kola eða bara hnísur. En ef að illa gengur það er Bræl' og veiðin virðist öll í mo-o-oll Við notum lukkutroll. Þakpappi og gúmmískór og þingeyskir strokkar, þett' og fleira fáum við í lukkutrollið okkar. Það bjargar alltaf móralnum á Sjónum er við höfum fengið nó-ó-óg Af því að vera á sjó. Áá (- áá - áá) útstíminu gerum klárt í gallana við förum, í gúmmístígvél sem að Reynir seld' okkur í pörum. En stundum slaknar Weberinn of Mikið og það slitnar einhver ví-í-ír þá eru góð ráð dýr. En þeramín og krabbamein og þónokkrir sokkar, þetta og fleira fáum við í lukkutrollið okkar. Það bjargar alltaf móralnum á Sjónum er við höfum fengið nó-ó-óg Af því að vera á sjó. Éé (- éé - éég) Er orðinn sjóveikur með svakalega drullu, Selirnir og múkkarnir þeir æl' á mig á fullu. Og það er bara rok og stundum Rigning og svo brotnar eitthvað dó-ó-ót ég er í krummafót. En túrtappar úr Litlu Ljót og tælenskir hnokkar, Og teletöbbí fáum við í lukkutrollið okkar. Það bjargar alltaf móralnum á Sjónum er við höfum fengið nó-ó-óg Af því að vera á sjó. Só (- só - só) Ló. Aa (- aa - aa) Andskotinn hann mætt' um borð og eyðilagði netið, Og af því varð nú heljartjón sem verður ekki metið. Og kokkurinn er pípari og Kann þess vegna ekk' að elda nei-i-itt Og það er pirrandi. En naflakusk og kettlingar og notaðir smokkar, Nóg af öllu fáum við í lukkutrollið okkar. Það bjargar alltaf móralnum og Hristir okkur strákana á Togaranum saman þegar það er allt í mínus og við Erum orðnir blautir og við Nennum ekki að horfa á sömu Klámmyndina einu sinni Enn og svo er skipstjórinn með Alzheimer og ratar ekki í Land sem vær' í lagi ef að Kellingarnar væru ekki í Talstöðinni nótt og nýtan Dag með væl og leiðindi og Kjölsvínið er þunglynt og Rýtir allar nætur svo við Getum ekki sofið og það Er bar' allt í tómu tjóni á Sjónum og við höfum fengið Nóg (- nóg - nóg) Af því að vera - á-á sjó-ó-ó.