Ég er að fara að fá mér í tána
Og fara kannski á rassgatið með Stjána.
Ég sé ekki af hverju ekki eins og staðan er í dag,
Það geisar holdsveiki í Herjólfsdal og kýlapest í Prag.
Spáin hún er ógeðsleg út árið,
á endanum þá missi ég allt hárið.
Aflabrestur enn eitt árið, uppskeran í steik,
Mig langar svo, mig langar svo að lyfta mér á kreik.
Komdu, komdu, ræs – allir í gallana!
Hó, hó, skál í botn, ekkert vol og væl!
Ef klárar þú úr glasinu,
ég kem með meira um hæl.
Svo drekk ég kannski dræjara á barnum
Og drullu þeyti'úr mér á kamarnum.
Það er allt á leið til helvítis, og ekkert vit í því
Að aulast heima þurrbrjósta, já komdu á fyllerí!
Þú blæðir kannski bjór á mig drengur,
En búrbú'væri jafnvel skárri fengur.
Nú blankur er og barþjónninn hann skrifar ekki meir,
Ef bjór ég ekki fæ í hvelli pottþétt einhver deyr.
Komdu, komdu, ræs – allir í gallana!
Hó, hó, skál í botn, drekkum beint af stút!
Sá sem klárar ekki er aumingi,
Við hendum honum út.
Ef öll mín prívathelvíti eru manngerð,
ég ætti kannski að drulla mér í meðferð? (NEI!)
Hvurn andskotann er ég að bulla, er ég orðinn snar?
Ég ætla að fara út í kvöld og beint á næsta bar! (JÁ!)
Blindfullur og bekkirnir auðir,
Og bæði ég og Stjáni næstum dauðir.
Þetta er óþolandi helvíti, það endist ekki neinn,
Og eftir svona hálftíma þá sef ég eins og steinn.
Komdu, komdu, ræs – allir í gallana!
Hó, hó, skál í botn, er einhver undir borði?
Það er eins og húsið hafi gleypt
Alla með haus og sporði.
Hó, hó, skál í botn, oní kokið keyrði
Könnu fulla af rommi í malt,
Og það síðasta sem ég heyrði,
Var: "Hó, hó, skál í botn!"
Поcмотреть все песни артиста