Ég alveg alein bý í stórri blokk Bisa við halda öllu hreinu og fínu Ef þrusk ég heyri eða þungarokk Þá ósjálfrátt ég missi stjórn á skapi mínu Og ég sem var alltaf... Svo barnagrát heyri á næstu hæð Helvítið er örugglega ofalið og ljótt Ég legg á foreldrana fæð Þau friðinn rjúfa ekki hjá mér aðra nótt Og ég sem var alltaf svo indæl bæði og góð Verð alveg óð Og ég rýk út með búrhnífinn og borvélina Brýst með látum inn Sker suma á háls en geri gat á hina Græti mannskapinn Þvæ mér síðan með þvottapoka Og þurrka af mér blóð Það borgar sig stundum að hafa bara hljóð Örmagna ég legg mig litla stund Laga pínu kaffi og kúri inni Í næstu íbúð heyri gelta hund Húsreglurnar mölbrotnar í hinsta sinni Og ég sem var alltaf svo indæl bæði og góð Verð alveg óð! Og ég rýk út með búrhnífinn og borvélina Brýst með látum inn Sker suma á háls en geri gat á hina Græti mannskapinn Þvæ mér síðan með þvottapoka Og þurrka af mér blóð Það borgar sig stundum að hafa bara... Og ég rýk út með búrhnífinn og borvélina..., nei! Ég rýk út með meitilinn og matvélina Mæti aftur inn Úrbeina útvalda en hakka hina Hræri mannskapinn Raða svo öllu í ruslapoka Og reyni að hylja slóð Það borgar sig stundum að hafa bara Það borgar sig stundum að hafa bara Það borgar sig stundum að hafa bara Það borgar sig stundum að hafa bara hljóð