Ég vakna þyrstur, þunnur og glær Og þykist finna að ég er allsber. Ég greini hárbrúsk og holdugar tær Og held þær séu ekki af mér. Ég læðist fram úr og laumast svo út Og lofa Guði að hætta í dag. Þá finn ég gambra og Guð set á mjút Með gúlsopa kem öllu í lag. En hvernig sem verður og hvernig sem fer Og þó að hirði mig loks andskotinn Og þó að enginn nenni að hlusta á árans gaulið í mér Þá syng ég fyllibyttublúsinn minn Þá syng ég: Lala... Svo hafðu drengur í huganum eitt Ef herja á þig sorgir og sút Þú getur dimmu í dagsljósið breytt Ef þambar þú smá landa af stút En hvernig sem verður og hvernig sem fer Og þó að hirði mig loks andskotinn Og þó að enginn nenni að hlusta á árans gaulið í mér Þá syng ég fyllibyttublúsinn minn Þá syng ég: Lala... En hvernig sem verður og hvernig sem fer Og þó að hirði mig loks andskotinn Og þó að enginn nenni að hlusta á árans gaulið í mér Þá syng ég fyllibyttublúsinn minn Þá syng ég: Lala...