Það var gott í sjóinn þegar afi var róa'inn,
Daginn sem hann fyrst mig augum bar.
Það var Sjötíu og átta, áður en menn fóru að þrátta
Um kvótakerfið og allt ruglið þar.
Ég var knúsaður, kysstur, hylltur, hristur.
"Bráðum færðu að fara á sjó."
"Þetta er myndardrengur og það er mikill fengur
Fyrir okkur að eignast nýja aflakló."
Fyrirgefðu, afi Maggi,
Fyrirgefðu, afi Aggi,
Mig langar bara ekki á sjó.
Fyrirgefðu, pabbi, mamma,
Fyrirgefðu, Tóta amma,
ég verð aldrei aflakló.
Á fyrsta bala ég fór að dala,
Mér fannst lyktin bara ekki góð.
"Hættu að væla"! En ég þarf að æla,
Þetta reyndist verða mitt hinsta bjóð.
Fyrirgefðu, afi Maggi,
Fyrirgefðu, afi Aggi,
Mig langar bara ekki á sjó.
Fyrirgefðu, amma, Tóta,
Fyrirgefðu, amma Erla,
ég verð aldrei aflakló.
Svo ég bað um að fá
Rafmagnsgítar en þá
Brást hún amma í grát:
"Villtu ekki frekar eignast bát?"
Nei amma mig dreymir um að
Verða rokkstjarna og það
Stoppar mig ekki neitt,
Amma, mér þykir það leitt.
En þegar allt kemur til alls
þá get ég spilað sjómannavals.
Samið lög handa þér
Svo þú verðir stolt af mér.
Amma mín, þú ert fín,
Afi minn, þú ert fínn.
Поcмотреть все песни артиста