Ég mundi ekki eftir henni mömmu svona kátri Mér leist ekkert á það þegar inn í búr hún gekk Hérna færðu litli kútur haug af súru slátri Því heillin mín í dag þú átt að byrj'í fyrsta bekk Því heillin mín í dag þú átt að byrj'í fyrsta bekk
Ég kunni ekki plús og mínus kunni ekki að stafa Kunni ekki litina og benti mömm'á það Líklega þá vilja börnin lítið með mig hafa Og lemja mig í klessu eða tak'í nasabað Og lemja mig í klessu eða taka í nasabað Mamma tók þetta ekki gilt og mig í bílinn leiddi Margoft sagðist ekki nenna að hlusta á þetta suð Voða sætur sagði hún og vandlega mér greiddi Og vandræði þú leysir með að hlusta bar'á guð Og vandræði þú leysir með að hlusta bar'á guð ♪ Lengst í burt hún keyrði svo og leit ekki til baka Lét mig ekki einu sinni hafa nestið mitt Þar var einmitt rúgbrauðssneið og risa skúffukaka Og rúsinur já þegar ég er búinn með allt hitt Og rúsinur já þegar ég er búinn með allt hitt ♪ Ég feiminn gekk upp tröppurnar með fjólubláar lúffur Furðu erfitt lífið þegar allt á móti blæs Konan sagði að fötin ættu að far'í merktar skúffur Ég fann bara aldrei mína enda ekki orðinn læs Ég fann bara aldrei mína enda ekki orðinn læs Svo fór ég inn í stofu númer 508 Með fiðring bæði og ógleði í litla mallanum Furðulegur bæði var og frekar utangátta Þeim fannst ég vera skrýtinn svon'í útigallanum Þeim fannst ég vera skrýtinn svon'í útigallanum ♪ Þau hlógu að mér og allt í einu hafði ég víst pissað Heilmikið í buxurnar og grátandi út gekk Mamma sko ég sagði þér að vel ég ósköp viss'að Ég væri ekki tilbúinn að kenna fyrsta bekk Ég væri ekki tilbúinn að kenna fyrsta bekk Ég væri ekki tilbúinn að kenna fyrsta bekk