Svífur yfir sænum Að þrotum komið ský Snýtir sér í bænum Kappklædd kona tekur eftir því Hvað Jóni Sigurðssyni Hljóti að vera kalt Frakkalausum, vini Lands og þjóðar húrrað sautjánfalt Veðurglöggur rýnir, rekur görn Ranglar út í sortann, biður lágt Til guðanna um loftmyndir Norðurljós og hæga vestanátt Það pípir og pissar inn Á plussið í lófann minn Þeir spáðu einn liðinn dag Það fjaraði' og flæddi að Þylur úti á hóli Þulu syngur hlær Kári í jötunmóði Mígur upp í vindinn elliær Veðurglöggur rýnir, rekur görn Ranglar út í sortann, biður lágt Til guðanna um vígahnetti, þrumuský Og ný dekk undir Karlsvagninn Og svo finnst mér að mætti fjölga í fiskunum... Það pípir og pissar inn á plussið í lófann minn Þeir spáðu...