Hver gengur þarna eftir Austurstræti Og ilmar eins og vorsins blóm, Með djarfan svip og ögn af yfirlæti, á ótrúlega rauðum skóm? Ó, það er stúlka engum öðrum lík, það er hún Fröken Reykjavík, Sem gengur þarna eftir Austurstræti á ótrúlega rauðum skóm. Og því er eins og hafi vaxið Vorsins blóm á stræti. Hver situr þar með glóð í gullnum lokkum í grasinu á Arnarhól, Svo ung og djörf í ekta nælonsokkum Og nýjum, flegnum siffonkjól? Ó, það er stúlka engum öðrum lík, það er hún Fröken Reykjavík Sem situr þar með glóð í gullnum lokkum í grasinu á Arnarhól, Svo æskubjört og fríð og nett í nýjum kjól- og sokkum. Hver svífur þarna suður tjarnarbakka Til samfundar við ungan mann, Sem bíður einn á brúnum sumarjakka Hjá björkunum við Hljómskálann? Ó, það er stúlka engum öðrum lík, það er hún Fröken Reykjavík Sem svífur þarna suður Tjarnarbakka, Til samfundar við ungan mann Sem bíður einn hjá björkunum Við Hljómskálann, Hljómskálann.