Kishore Kumar Hits

Arny Margret - raddupptaka_001 lyrics

Artist: Arny Margret

album: Raddupptaka_001


Morgundöggin lagði sig yfir allt
Þegar ég sá ekki til
Sokkarnir blautir um átta leytið
Ég hljóp yfir túnið svo ég yrði ekki sein
Enginn sá mig koma
Þó að losnaði reim
Sápan í vaskinum, hárið ógreitt
Gleraugun skítug
Ég gerði ekki neitt
Því ég sé þig enn
Þú ert hér enn
Ég sagði ekkert þegar myrkrið kom
Það tekur orðin frá mér
Og fyllir mig svo
Af öllu því sem að eitt sinn var
Ég verð að engu
Allt stendur í stað
Því ég sé þig enn
Þú ert hér enn
Haustið kemur
Veturinn kemur
Ekkert í mig heldur
Hver þá heldur?
Ljósið kemur
Myrkrið kemur
Ljóðin hljóma
Þegar þú sefur
Ég vil bara vera
Vera og vera
Finna loftið
Finna það léttast

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists