Nú er frost á Fróni Frýs í æðum blóð Kveður kuldaljóð Kári í jötunmóð Yfir laxalóni Liggur klakaþil Hlær við hríðarbyl Hamragil Mararbára blá Brotnar þung og há Unnarsteinum á Yggld og grett á brá Yfir aflatjóni Æðrast skipstjórinn Harmar hlutinn sinn Hásetinn Horfir á heyjaforðann Hryggur búandinn: "Minnkar stabbinn minn Magnast harðindin" Nú er hann enn á norðan Næðir kuldaél Yfir móa og mel Myrkt sem hel Bóndans býli á Björtum þeytir snjá Hjúin döpur hjá Honum sitja þá Hvítleit hringaskorðan Huggar manninn trautt Brátt er búrið autt Búið snautt Þögull Þorri heyrir Þetta harmakvein Gefur grið ei nein Glíkur hörðum stein Engri skepnu eirir Alla fjær og nær Kuldaklónum slær Og kalt við hlær: "Bóndi minn, þitt bú Betur stunda þú Hugarhrelling sú Er hart þér þjakar nú Þá mun hverfa, en fleiri Höpp þér falla í skaut Senn er sigruð þraut Ég svíf á braut"