Sjái' eg stjarnanna sæg glita bláhimins geim, Yfir grænskóg í náttdaggar þey, ó, hve langar mig þá upp í alsælu heim á hins eilífa kærleikans ey. Því við sólnanna dans, uppi' í himninum hátt, Giftir hana mér eilífðin löng, Sem hér niðri við jörð eg hef aldregi átt Nema í elskunnar draumum og söng.